
ANNA LÍSA
Aðferð Litlu-Músar

Litla-Mús hefur meðfædda hæfni og þekkingu sem hún nýtir til þess að hjálpa dýrunum sem verða á vegi hennar. Hún treystir nokkuð óhikað á innsæið sitt og spyr oft á tíðum erfiðra spurninga enda hefur hún ekki lært hvernig henni ber að haga sér eða hvað henni á að finnast um heiminn eða önnur dýr.
​
Sú hæfni og þekking sem Litlu-Mús var gefið í vöggugjöf af skapara sínum, má meðal annars finna í markþjálfun og Yager meðferð.

_edited.jpg)
Markþjálfun þarf nú vart að kynna, en hún byggir meðal annars á hnitmiðuðum spurningum og virkri hlustun.
​
Yager meðferð er sköpun Dr. Edwins K. Yagers, læriföður Önnu Lísu og vinar. Hún aðlagaði aðferð hans að börnum og nýtir Litla-Mús bæði Yager meðferð fyrir börn og fullorðna, jöfnum höndum.
​
Yager meðferð er einstök, einföld, fljótvirk og mjög áhrifarík aðferð. Hugmyndafræðin á bak við aðferðina er alls ekki flókin.
Öllu venjulega er vitundinni skipt í tvennt, þ.e. meðvitund og undirvitund. Dr. Yager gerir hins vegar ráð fyrir því að um þriðja hluta vitundarinnar sé að ræða eða okkar æðra vitsmunastig, nokkurs konar viskuvitund (e. extra-counciousness). Dr. Yager gaf þessum hluta nafnið Centrum og margir af meðferðarþegum hans sem og lærisveina hans, tala um Centrum sem innsæi sitt, sálina eða æðri leiðbeinanda svo eitthvað sé nefnt.
Centrum finnur uppruna vandamála einstaklingsins með leiðbeiningum frá Yager meðferðaraðila og finnur lausn. Einstaklingar geta líka nýtt aðferðina sem sjálfshjálparleið.
Dr. Edwin K. Yager hefur þróað aðferðina og sannreynt virkni hennar í fjölda ára.
b.jpg)
Meira um Yager meðferð
Yager meðferð fyrir börn
Skapari Yager aðferðarinnar

Eins og áður sagði hefur Centrum þann eiginleika að geta leitað í undirvitundinni að rót vandamáls og fundið viðeigandi lausn.
Það er hægt að líkja vandamálinu við forrit sem hefur ekki fengið uppfærslu lengi, það veit ekki að það sem það sér um er ekki æskilegt lengur á einhvern máta. Eftir uppfærsluna hefur það fengið nýjustu upplýsingar um vonir og væntingar, hag og hagsmuni einstaklingsins. Það getur leyst vandann og einkennin, sem voru merki um að eitthvað væri að, gætu horfið.
Þessi merki/einkenni geta verið margvísleg. Verkir, fíkn, kvíði, streita, ótti, fóbíur, þráhyggja, ágengar hugsanir, svefnvandamál, latur ristill, skortur á sjálfstrausti, asmi, húðvandamál, undirmiga, kækir, stam o.fl.
Undirvitundin er tengd ósjálfráða taugakerfinu og því margs konar einkenni sem geta komið fram þegar um vandamál í undirvitundinni er að ræða.
Það mætti segja að það borgi sig að athuga hvort uppruna einkenna megi rekja til undirvitundarinnar. Hafa ber þó í huga að leita skal til læknis þegar um sjúkdómseinkenni er að ræða.

Yager meðferð hentar mjög vel fyrir börn.
Anna Lísa aðlagaði einmitt aðferðina að börnum með góðum árangri.
Yager meðferð fyrir börn hefur hjálpað börnum með, kvíða, hræðslu, reiði, ljótar hugsanir, þráhyggju, óútskýrðan höfuðverk, svefnvandamál, fælni, námsvanda og ofskynjanir, svo eitthvað sé nefnt.
Anna Lísa ferðaðist með Dr. Yager og kenndi Yagerian Therapy fyrir börn. Til að mynda til Berlínar og Magdeburg í Þýskalandi sem og til Rheinfelden í Sviss.
Hún tók einnig þátt í kennslu á námskeiðum Dr. Yagers, sá um æfingar og kom að sýnikennslu þegar Dr. Yager hefur bað hana um að taka við meðferðinni.
​
Anna Lísa bíður einnig upp á viðurkennd Yager meðferðarnámskeið hér heima. Hún er eini viðurkenndi Yager meðferðarkennarinn á Íslandi.

Dr. Yager hafði Ph.d í sálfræði og starfaði sem prófessor við læknadeild University
of San Diego, kominn á tíræðis aldur.
Hann starfaði líka á einkastofu sinni ásamt því að ferðast um allan heim til að kenna aðferðina og sinna þannig köllun sinni að breiða út Yagerian Therapy. Of langt mál er að telja upp öll þau lönd sem hann ferðist til.
Dr. Yager setti á fót stofnun, Subliminal Therapy Institute Inc. (STII) til að halda utan um aðferðina, Yager meðferðaraðila sem og kennara.
​
Dótturstofnun STII er í Mexíkóborg en þar fer fram kennsla, rannsóknir og meðferðarstarf sem byggir á hugmyndafræði Yager meðferðar
Frekari upplýsingar um Dr. Yager og eða STII má fá með því að smella á hnappana hér fyrir neðan.