
ANNA LÍSA
Yager meðferð
Yager meðferð var sköpun Dr. Edwins K. Yager heitins, læriföður Önnu Lísu og vinar. Aðferðin er bæði einstök, einföld, fljótvirk og mjög áhrifarík aðferð. Hugmyndafræðin á bak við aðferðina er alls ekki flókin.
Öllu venjulega er vitundinni skipt í tvennt, þ.e. meðvitund og undirvitund. Dr. Yager gerði hins vegar ráð fyrir því að um þriðja hluta vitundarinnar væri að ræða eða okkar æðra vitsmunastig, nokkurs konar viskuvitund (e. extra-counciousness). Dr. Yager gaf þessum hluta nafnið Centrum og margir af meðferðarþegum hans sem og lærisveina hans, tala um Centrum sem innsæi sitt, sálina eða æðri leiðbeinanda svo eitthvað sé nefnt.
​
Centrum finnur uppruna vandamála einstaklingsins með leiðbeiningum frá Yager meðferðaraðila og finnur lausn. Einstaklingar geta líka nýtt aðferðina sem sjálfshjálparleið.

Anna Lísa & Dr. Yager
Eins og áður sagði hefur Centrum þann eiginleika að geta leitað í undirvitundinni að rót vandamáls og fundið viðeigandi lausn.
Það er hægt að líkja vandamálinu við forrit sem hefur ekki fengið uppfærslu lengi, það veit ekki að það sem það sér um er ekki æskilegt lengur á einhvern máta. Eftir uppfærsluna hefur það fengið nýjustu upplýsingar um vonir og væntingar, hag og hagsmuni einstaklingsins. Það getur leyst vandann og einkennin, sem voru merki um að eitthvað væri að, gætu horfið.
Þessi merki/einkenni geta verið margvísleg. Verkir, fíkn, kvíði, streita, ótti, fóbíur, þráhyggja, ágengar hugsanir, svefnvandamál, latur ristill, skortur á sjálfstrausti, asmi, húðvandamál, undirmiga, kækir, stam o.fl.
Undirvitundin er tengd ósjálfráða taugakerfinu og því margs konar einkenni sem geta komið fram þegar um vandamál í undirvitundinni er að ræða.
Það mætti segja að það borgi sig að athuga hvort uppruna einkenna megi rekja til undirvitundarinnar. Hafa ber þó í huga að leita skal til læknis þegar um sjúkdómseinkenni er að ræða.
Dr. Edwin K. Yager
Dr. Edwin K. Yager hafði doktorspróf í sálfræði og starfaði sem prófessor við læknadeild University of San Diego, kominn á tíræðis aldur.
Dr. Yager starfaði líka á einkastofu sinni ásamt því að ferðast um allan heim til að kenna aðferðina og sinna þannig köllun sinni að breiða út Yagerian Therapy (fyrst þekkt sem Subliminal Therapy) Of langt mál er að telja upp öll þau lönd er hann ferðaðist til.
Dr. Yager setti á fót stofnun, Subliminal Therapy Institute Inc. (STII) til að halda utan um aðferðina, Yager meðferðaraðila sem og kennara.
​
Dótturstofnun STII er í Mexíkóborg en þar fer fram kennsla í samstarfi við háskóla þar í borg, rannsóknir og meðferðarstarf sem byggir á hugmyndafræði Yager meðferðar. Sjá meira hér.
Frekari upplýsingar um Dr. Yager og eða STII má fá með því að smella hér.
